24desember
Hvíldu í friði elsku amma mín, allar góðu stundirnar og allar minningarnar um þig lifa að eilífu. Guð blessi þig.

Ásgeir Haukur Guðmundsson.
08desember
Það er allt gott að frétta héðan frá Kína, nú er skólinn búinn og allt að verða klappað og klárt fyrir heimförina sem er þó ekki fyrr en eftir c.a. 10 daga, það er kominn smá spenningur í menn að komast heim en við eigum flug 18 des. frá Shanghai og flug heim frá London 21 des. Mikið djöfull verður gott að komast heim....
Þó að það sé kannski skítakuldi á Íslandi þá eru allavega allskonar græjur til að halda hita í húsum eins og til dæmis ofnar og arir sem eru sjálfsagðir hlutir heima, en það er skoo ekki hér í Kína. Ofnar eru bara alls ekki notaðir í þeim helmingi í Kína þar sem við búum vegna þess að stjórnvöld í Kína töldu að það yrði ekki það nógu kalt í þessum hluta. En það skiptis við ákveðna á í miðju landinu og við höfum enga ofna hér, heldur einungis eldgamla miðstöð sem blæs heitu við og við en það er ekki það eina sem kemur útúr þessari dós heldur blæs hún út aldagamali skítalykt frá tímum frumbyggja sem fer langt með það að eyðileggja heilsu okkar bræðra og því er ávallt slökkr á henni. Það er því alltaf kalt inni íbúð okkar á Yangchang Road og þó að maður sé full klæddur undir sæng fær maður samt einhverja helvítis flensu. Ekki nógu gott mál það því á næstunni ætlar bankinn Glitnir að bjóða okkur bifrestingum í ferð. Klikka Hér!!
Í dag förum við á lokahóf hjá skólanum okkar Shanghai Daxué, þar sem við fáum viðurkenningu fyrir skólavistina hér í Shanghai. Flestir Íslendingarnir eru enþá hér í Shanghai og verða það eitthvað áfram en þrír aðilar á lögfræðideildinni halda til Tælands nú á laugardaginn.
Jæjaa... Ég er búinn að bulla nóg í bili, ætla að fara í apótek og fá eitthvað við þessum skít sem ég náði mér í.
Kv.Ásgeir Haukur
06desember
Jæja.... Þá er skólagöngu minni hér í Kína lokið og er ég nú bara nokkuð sáttur með það. Gekk bara vel í prófunum og þá sérstaklega í kínverskunni. Við Íslendingarnir fögnuðum því vel og innilega í gær en okkur var boðið í partý hjá Glitni, en þar flæddi áfenginu gjörsamlega og þess vegna er ég með mikinn hausverk í dag. Þess vegna nenni ég ekki að blogga meir.
Setning dagsins: Ojj... Finnur þú svitalyktina af honum?? Fokkk... jáá þessi lykt gæti drepið hest!!!
28nóvember
Þetta var alveg frábær afmælisdagur og hafði ég það bara mjög gott þennan daginn...
Merkis dagurinn 25 nóvember 2006 innihélt m.a.: æfingu, brunch, ljós, nudd, paintball og svo loks út að borða. Maður getur nú ekki beðið um mikið meira. Ekki get ég sagt að maður finni fyrir miklum breytingum þó að maður sé jú árinu eldri eða 23 ára. Hins vegar er 23 ein uppáhalds talan mín þar sem tveir af bestu íþróttamönnum í heiminum fyrr og síðar hafa borið þessa tölu og gera það ennþá, sem lítill strákur dreymdi manni um að verða eins og þeir. Þetta eru auðvitað snillingarnir og átrúnaðargoðin M.Jordan og David Beckham.
Annars er munnlegt kínversku próf næst á dagskrá eða á morgun miðvikudaginn, á föstudaginn eigum við að skila tveimur ritgerðum og svo á mánudaginn eru tvö próf, fyrst förum við í kínversku prófið svo eftir hádegi er það buisness law og þá er þetta bara búið hérna úti að hugsa sér.
Ég reinka fastlega með því að koma fyrr heim en áætlað var og er að vinna í því að breyta dagsetningum á fluginu heim, þar sem hún elsku amma mín er orðin veik og vil ég ekkert annað en að komst heim til þess að heimsækja hana og vera hjá henni.
Bestu kveðjur heim, hafið það gott og takk kærlega fyrir kveðjunar.
Kv. Ásgeir Haukur.
23nóvember
Hver kannast ekki við það að vera latur og taka svokölluð letiköst, liggja upp í sófa/rúmi horfa á góða bíómynd eða enska boltann, vera kannski smá þunnur eða bara jafnvel þreyttur en þrátt fyrir það er maður samt sem áður að reyna að gera gott úr hlutunum með því að vera góður við sjálfan sig....
Þá er nú helvíti gott að geta bara tekið upp símann og pantað góða pizzu heim til sín. Kostar ekki mikið, maturinn kemur alveg uppað dyrum, sparar tíma og vesen svo þarftu ekki að elda eða gera neitt bara taka upp símann og taka á móti pizzunni þegar hún kemur og borga fyrir hana.
En svona auðvelt er þetta nú ekki hér í Kína, þegar við fóstbræður á Yangchang Road vorum þreyttir/þunnir/sveittir um daginn og nenntum ekki að gera nokkurn skapaðan hlut. Þá tók Óli upp símann og pantaði pizzu á Melrose Pizza “Besta Quality Pizza In Town”
Samtal Óla við starfsmann Melrose:
Óli: Hello!! I like to order one pizza.
Melrose: Uhh.. Hello wait.
Óli: What!! (bíður í 2 til 4 min. í símanum). Melrose: Yeahh!! Hello can me help? (Rosalega bjöguð ensk rödd).
Óli: Yes, I like to order one pizza.
Melrose: OK! How long. (átti við how big).
Óli: Uuuhh.... One big pepperoni pizza.
Melrose: OkOk... What want at the pizza?
Óli: Pepperoni, I like to have one pepperoni pizza.
Melrose: Ahhh OkOk!! Where to send pizza ??
Óli: Yangchang Road 152, building 18 doorbell 703.
Melrose: Yangchang Lu !! Whhaatt ??
Óli: Yangchang Road 152, House 18, Door 703.
Melrose: Aahhh OkOk, Mr. Oli!!!
Óli: When does the pizza arrive to my house? Melrose: 2 minutes. (klárlega eitthvað að ruglast).
Óli: Whhhaaaattt????? 2 minutes……
Melrose: Ahhh…. No crazy, 20 minites.
Óli: What!! I´m not crazy you are crazy chinse fuckhead!!
Melrose : OkOk!! Thank you Mr. Oli byebye….
Óli: Thank you byebye.
Þessi enskusnillingur kom svo með pizzuna okkar eftir 2 klukkustundir og hafði þetta að segja. "I come house, No house" ekki vitum við ennþá daginn í dag hvað þessi ágæti maður átti við. En hann kvaddi okkur með bros á vör enda lét hann okkur fá kalda pizzu sem var einnig með þessu skemmtielga rassafari. Þannig að þegar við opnuðum hana þá var allt klesst og viðbjóðslegt. En þá hafði hann setið ofaná henni á litlu vespunni sinni. Enda að fara með aðrar 10 pizzur í leiðinni. Auðvitað!! Nýta ferðina sjáðu til, sniðugir þessir kínverjar.
Annars er bara allt fínt að frétta nóg að gerast núna á næstunni. Ásinn á auðvitað afmæli á laugardaginn eins og alþjóð veit en því miður verður ekkert tryllt-party þetta árið í Lækjarhjallanum, veit að ma+pa anda léttar. Prófin byrja svo í næstu viku, þannig að það er eins gott að standa sig.
Núna í dag er akkurat búið að rigna í viku á okkur hér í Shanghai og það er skoo hellings rigning og á víst að vera svona þunglyndis rigningar veður næstu 10 daga……
Bestu kveðjur heim.
Acemaster.
P.S. Var að setja inn myndir frá dýragarðinum WildPark.
19nóvember
Það er nú ekki mikið í fréttum það er farið að kólna skuggalega á nóttinni og þar sem við erum í þeim hluta Kína þar sem ekki eru notaðir ofnar getur orðið frekar kalt. En hvað er maður að kvarta það er ekki eins og það sé brjálað rok, snjór og skítakuldi. Við erum hinsvegar farnir að sofa í sokkum og hlýjum fötum. Næstu helgi erum við svo vonandi að fara til Bejing, en það er höfuðborg Kína og á að vera afskaplega falleg og skemmtileg borg.
Það fer að líða að prófunum, en við eigum að skila 2 ritgerðum, í hagfræði og í Chinese Culture. Eitt próf í Buisness Law og svo bæði skriflegt og munnlegt kínversku próf og þá er það komið. Í kínverskamunnlega prófinu eigum við að halda uppi samræðum í 8 min. takk fyrir og verður það án nokkurs vafa mjög fyndið og skrautlegt, er að spá í að reyna að taka það uppá video. Skólinn átti að klárast 8 des. en það hefur eitthvað verið að rugla okkur með dagsetningum og vonast maður bara til þess að verða búinn fyrr.
Þetta ævintýri hér í Kína verður svo búið áður en maður veit af og er ég bara nokkuð ánægður með það, enda orðinn pínu þreyttur á stórborginni, menguninni og öllu sem því fylgir að búa í 16 til 18 milljón- manna borg. Það verður því gott að komast heim til Íslands í Lækjarhjallann.
Annars kasta ég bara kveðju heim.
Ásgeir
10nóvember
En það er þó aðeins farið að kólna en ekki mikið.... Annars er bara allt það besta að frétta af okkur hér í Kína, það er mikið búið að vera að gera hjá okkur undanfarið ásamt því kláruðum við Markaðsfræðina í fjarnámi og fórum í kínverskupróf um daginn, sem gekk allt saman vel. Framundan er svo risamót í tennis sem er haldið hér í Shanghai ásamt golf móti þar sem allra frægustu kapparnir eru að mæta á svæðið. Gæti verið að við kíkjum á þessa viðburði aldrei að vita.
Síðustu helgi fórum við Óli, Siggi og Jenný kærasta hans í dýragarðinn hér í Shanghai. Það var mjög gaman sjáum auðvitað fullt af dýrum og öll þeirra helstu uppátæki, það kemur kannski ekki á óvart en ljónin og tígrisdýrin stálu athygli okkar en við keyrðum í brimvörðum bíl um svæði þar sem þau gengu laus, við hengdum hænu utaná bílinn sem dýrin börðust svo um að ná og að lokum fór svo að hænan endaði í kjaftinum á tígrisdýri. Við fengum einnig að halda á litlum ljónsunga sem var um 1 mánaðar gamall hann var algjör dúlli. Aparnir komu sterkir inn enda hef ég lengi verið aðdáandi þeirra. Þeir voru mjög fyndnir og hressir... Ásamt því sáum við hunda/hesta/úlfvalda og strúta - hlaup mjög skemmtileg allt saman.

Þessi api sem situr þarna á milli mín og Óla er algjör snillingur.
Það ríkir mikil plötusnúðamenning hér í Shanghai og nánast um hverja helgi eru einhverjir frægir og góðir plötusnúðar mættir hingað í borg til að heiðra okkur með nærveru sinni. Um síðustu helgi var engin breyting þar á. Þá var það enginn annar en Timo-Maas, en hann spilaði á risastórum klúbb sem heitir G - Spot hér í borg, og auðvitað létum við okkur ekki vanta enda er þar á ferð mikill snillingur sem oftar en ekki hefur komið við á klakanum og spilað fyrir dansþyrsta Íslendinga (Óli). Stór hópur af okkur Íslendingunum sótti þessa uppákomu við gríðarlegan fögnuð og mikla skemmtun þar sem hinn ónefndi fór hamförum.
Timo Maas í fullu fjöri!!
Við stefnum á klæðskeramarkaðinn um helgina en þar fáum við stór glæsileg sérsaumuð jakkaföt, skyrtur og fl. á alveg gjafaverði.
Svo er stefnan sett á ákveðinn markað þar sem hægt er að versla helling af góðum og flottum jólagjöfum fyrir allt liðið heima. Ekki slæmt það!!
P.S. Var að setja inn myndir frá því að við fórum í TV - Tower-inn en hann er risarisa stór eða 468 m og þriðji stærsti TV and Radio Turninn í heiminum. Fleiri myndir eru væntanlegar málið er bara að ég og fotki erum ekki bestu vinir þessa dagana.
Bestu kveðjur heim.
Þetta er Ásgeir Háá Guðmundsson sem talar frá Shanghai, Kína.
03nóvember
Við Íslendingarnir erum búnir að vera duglegir við að nýta okkur það að fara í ódýr og góð nudd hérna í Kína. Enda eru Kínverjarnir algjörir snillingar þegar kemur að nuddi, við höfum farið í allskonar nudd hérna úti og yfirleitt verið mjög sáttir eftirá, það sem við höfum meðal annars farið í er þetta hefðbundna fóta/olíu/ og steina - nudd. Öll þessi nudd eru yfirleitt mjög þægnileg þó hafa komið upp einstaka tilvik eins og þegar Olga kúluvarparinn frá "Rússlandi/Kína" nuddaði næstum lífið úr Guffa félaga okkar hérna, hann var að drepast allan tíman í nuddinu og gat ekki komið upp orði vegna sársauka og öskra, hann var margar vikur eftir á að jafna sig og í dag kallar hann þessa nuddstofu "helvítis nastisa og fasista stofuna".
Eins lenti einn ónefndur aðili í því að það var verið að nudda hann ansi vel í nárann og var félaginn kominn í góðan fíling eða um 60-70%. Þegar nuddarinn tekur uppá því að vippa honum yfir á bakið þannig að vinurinn flaggaði í fulla stöng og svona líka rosalega beint uppí loftið, ónefndi aðilinn var ekki lengi að feika meiðsli aftaní læri með tilheyrandi látum þannig að honum var vippað strax aftur á magann og gerði nuddarinn að sárum hans aftaní læri. Þarna slapp hann ágætlega frá þessu en þetta gerðist inná stofu þar sem yfirleitt eru 3-5 saman í nuddi í einu.
Þegar ég fer í fótanudd sem er mjög þægilegt og yfirleitt fær maður fótasnyrtingu með sem er ekki verra þá eru tærnar á mér alltaf mikið hlátursefni. Ekki vegna þess hversu ljótar þær eru þvert á móti enda er ég með afar fallegar tær þó ég segi sjálfur frá. En það sem kínversku nuddurunum finnst svona rosalega fyndið er "sundfitið mitt" milli tásurnar sem er við hlið stórutáar, þ.e.a.s. tá númer 2 og 3 eru smá fastar saman og þetta alltaf mikið hlátursefni. En þetta hjálpaði mér alltaf mjög mikið í skólasundi hér fyrir nokkrum árum enda ekki ófáar medalíurnar sem maður fékk fyrir sundið. Þess má geta að ég veit um einn sem er líka með svona "sundfit" á milli tána og það er pabbi minn, við erum þeir einu sem ég veit um enda er ég ekki mikið fyrir það að skoða tærnar á öðru fólki.
Jæjaa... Nóg af bullinu í mér vonandi hafið þið það gott um helgina, bestu kveðjur heim. Lifið heil
Kv. Ási - Sundgarpur með "sundfitið"

Þess má geta að þetta eru ekki fallegu tærnar mínar...
29október
Jæjaa... Það er bara allt gott að frétta héðan frá Kína, við félagarnir erum búnir að vera mikið í því að bregða hvor öðrum undanfarið og náði ég að hefna mín rækilega á Óla um daginn... En nú læsum við alltaf hurðinni þegar við förum að sofa. (kem með sögu af því seinna og vonandi myndband).
Annars fórum við uppí TV-Tower-inn í gær en það er alveg risastór bygging hér í Shanghai með útsýni yfir allt, þetta er víst 3 stærðsti turn í heimi og er hann rúmir 350m. Það verður nú að teljast helvíti hátt.
Í dag var ætlunin að fara í "Wild Park" dýragarðin hér í Shanghai en vegna þess hve snemma hann lokaði ákváðum við bara að skella okkur í "Vatnaborgina" sem er einskonar Feneyjar þeirra kínverja. Þarna fórum við og skoðuðum gamalt hof sem var mjög flott, þetta hof var í eigu einhvers milla sem átti endalaust af peningum í gamal daga svo fórum við auðvitað á bát og létum sigla með okkur um borgina sem var mjög flott.
Einnig var verslað eitthvað af mynjagripum/drasli þarna, ég og ólafur keyptum okkur t.d. sverð sem eru mjög flott ásamt allskonar rugli eins og ljótum höttum, skrýtnum hitapokum og flottum plakötum með nöfnum okkar á kínversku. (set inn myndir fljótlega af öllu þessu).
Annars erum við að gæla við það að fara til Tælands 9 des. þegar við erum búnir í skólanum á þvílíkt flotta eyju sem minnir helst á eyjuna sem var í myndinni "The Beach" með L. Di Caprio, þessi eyjar er mjög lítil en hefur uppá mjög margt að bjóða eins og t.d. körfun, sörf og fiskveiði svo eitthvað sé nefnt. Þar mundum við vera í c.a. 10 daga áður en við kæmum sætir og sólbrúnir heim beint í jólasteikina....
Ekki slæmt það!!!
Þangað til næst hafið það gott....... Ásinn kveður
25október
Sagan á bak við þennan miða:
Eins og sést er það Ólafur Dagsins sem að skrifar þennan miða sem virðist bera vott af samviksubiti og er það ágætt!! Miðann fann ég núna í morgun á rúminu mínu. Þá rifjaðist upp fyrir mér hvað Óli fann sér að gera í iðjuleysi sínu um miðja nótt. Ég var auðvitað löngu sofnaður þegar hann tekur uppá því að bregða mér, og það AllRooosalega.....
Óli hafði fyrr um daginn fjárfest í gítar, sem hann glamrar á þessa dagana. Hann fór með kassagítarinn inní herbergið mitt stóð yfir rúminu mínu, öskraði og glamraði eitthvað á gítarinn (lítur út eins og stór vélbyssa). Við þetta vaknaði ég upp frá góðum draumi um kærleiks-birnina. Mér dauðbráá og kastaði mér uppilofti og snéri mér í rúminu með tilheyrandi spörkum og látum í allar áttir og meira til. Þetta voru mín fyrstu viðbrögð svo öskarði ég á móti einhver óskiljanleg blótsyrði á kínversku. Óli auðvitað sprakk úr hlátri við þessi viðbrögð enda alveg fáranleg...
Þegar ég vaknaði í morgun þá lá þessi miði við hliðiná mér, Óli hafi greinilega fengið nett samviskubit yfir þessum hrekk sínum enda tókst honum vel upp. Hann er farinn að læsa að sér núna, það er ágætt því hann á ekki von á góðu.
Annars er bara allt gott að frétta.....
Kv.Ásgeir kung-fu, frá China.