Ólafur Dagsins međ Samviskubit!!

o.d.samviskubit!!


Sagan á bak við þennan miða:
Eins og sést er það Ólafur Dagsins sem að skrifar þennan miða sem virðist bera vott af samviksubiti og er það ágætt!! Miðann fann ég núna í morgun á rúminu mínu. Þá rifjaðist upp fyrir mér hvað Óli fann sér að gera í iðjuleysi sínu um miðja nótt. Ég var auðvitað löngu sofnaður þegar hann tekur uppá því að bregða mér, og það AllRooosalega.....

Óli hafði fyrr um daginn fjárfest í gítar, sem hann glamrar á þessa dagana. Hann fór með kassagítarinn inní herbergið mitt stóð yfir rúminu mínu, öskraði og glamraði eitthvað á gítarinn (lítur út eins og stór vélbyssa). Við þetta vaknaði ég upp frá góðum draumi um kærleiks-birnina. Mér dauðbráá og kastaði mér uppilofti og snéri mér í rúminu með tilheyrandi spörkum og látum í allar áttir og meira til. Þetta voru mín fyrstu viðbrögð svo öskarði ég á móti einhver óskiljanleg blótsyrði á kínversku. Óli auðvitað sprakk úr hlátri við þessi viðbrögð enda alveg fáranleg...

Þegar ég vaknaði í morgun þá lá þessi miði við hliðiná mér, Óli hafi greinilega fengið nett samviskubit yfir þessum hrekk sínum enda tókst honum vel upp. Hann er farinn að læsa að sér núna, það er ágætt því hann á ekki von á góðu.

Annars er bara allt gott að frétta.....

Kv.Ásgeir kung-fu, frá China.
25. október 2006 klukkan 15:46
Ásgeir Haukur Guđmundsson
Sögur
Andri stussy skrifar ...
hahahahahaha þessar stál taugar eru æði
25. október 2006 klukkan 16:58
Addi skrifar ...
óli er náttúrulega bara snillingar þegar kemur að þessu sko.....en þú verður að ná að hefna þín kadlinn....kv. Addi
25. október 2006 klukkan 17:47
Dísa skrifar ...
hahahaha....
Ég er hlynnt þessu...
Meiri hrekki takk...það er svo skemmtilegt aflestrar :)
25. október 2006 klukkan 20:41
Óli Kalli skrifar ...
Ég hef sjaldan hlegið jafn mikið..... það vantaði bara orðið \"mamma\" í öskrin frá stráknum með stáltaugarnar :)
En fyrirgefðu Ási minn, þetta var ljótt...ég sá það eftirá..!
En ég fékk svosem að finna fyrir því í nótt...:)
26. október 2006 klukkan 11:27
Ásinn skrifar ...
"Mamma" nei nú ertu að ruglast... Það vast þú sem kallaðir á "mömmu" í nótt þegar ég tók þig illa til baka. Sagan frá því fer að detta inn ásamt video. Það var ekkert Óli minn og sömuleiðis ætlaði ekki að hræða þig svona mikið.....
26. október 2006 klukkan 11:48
Danni skrifar ...
Mér finnst þessir miðar geggjaðir. Ási þú verður að fara safna þessum miðum frá honum óla. Einn á Akureyri og svo annar í sjanghai. Þið eruð miklir snillingar báðir tveir!!
26. október 2006 klukkan 21:15
Ásinn skrifar ...
Já það er rétt, ég á hinn ennþá þannig að maður gæti nú kannski farið að safna þessu.... Snilldar miðar!!
27. október 2006 klukkan 19:18
Óli Kalli skrifar ...
hahahahaha ég vil kenna Ása um það hversu skemmdur ég er orðinn eftir veruna hér.
Og ekki síður Daníeli Gám fyrir að hafa unnið markvisst að því í gegnum árin að spilla mér :)
27. október 2006 klukkan 20:13

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Leikur dagsins