08desember

Engir ofnar, skítakuldi og undir sæng full klæddur en samt veikur!!

Það er allt gott að frétta héðan frá Kína, nú er skólinn búinn og allt að verða klappað og klárt fyrir heimförina sem er þó ekki fyrr en eftir c.a. 10 daga, það er kominn smá spenningur í menn að komast heim en við eigum flug 18 des. frá Shanghai og flug heim frá London 21 des. Mikið djöfull verður gott að komast heim....

Þó að það sé kannski skítakuldi á Íslandi þá eru allavega allskonar græjur til að halda hita í húsum eins og til dæmis ofnar og arir sem eru sjálfsagðir hlutir heima, en það er skoo ekki hér í Kína. Ofnar eru bara alls ekki notaðir í þeim helmingi í Kína þar sem við búum vegna þess að stjórnvöld í Kína töldu að það yrði ekki það nógu kalt í þessum hluta. En það skiptis við ákveðna á í miðju landinu og við höfum enga ofna hér, heldur einungis eldgamla miðstöð sem blæs heitu við og við en það er ekki það eina sem kemur útúr þessari dós heldur blæs hún út aldagamali skítalykt frá tímum frumbyggja sem fer langt með það að eyðileggja heilsu okkar bræðra og því er ávallt slökkr á henni. Það er því alltaf kalt inni íbúð okkar á Yangchang Road og þó að maður sé full klæddur undir sæng fær maður samt einhverja helvítis flensu. Ekki nógu gott mál það því á næstunni ætlar bankinn Glitnir að bjóða okkur bifrestingum í ferð.
Klikka Hér!!

Í dag förum við á lokahóf hjá skólanum okkar Shanghai Daxué, þar sem við fáum viðurkenningu fyrir skólavistina hér í Shanghai. Flestir Íslendingarnir eru enþá hér í Shanghai og verða það eitthvað áfram en þrír aðilar á lögfræðideildinni halda til Tælands nú á laugardaginn.

Jæjaa... Ég er búinn að bulla nóg í bili, ætla að fara í apótek og fá eitthvað við þessum skít sem ég náði mér í.

Kv.Ásgeir Haukur



08. desember 2006 klukkan 08:46
Ásgeir Haukur Guðmundsson
Almennt
2 athugasemdir
06desember

Búinn í prófum.....

Jæja.... Þá er skólagöngu minni hér í Kína lokið og er ég nú bara nokkuð sáttur með það. Gekk bara vel í prófunum og þá sérstaklega í kínverskunni. Við Íslendingarnir fögnuðum því vel og innilega í gær en okkur var boðið í partý hjá Glitni, en þar flæddi áfenginu gjörsamlega og þess vegna er ég með mikinn hausverk í dag. Þess vegna nenni ég ekki að blogga meir.

Setning dagsins: Ojj... Finnur þú svitalyktina af honum?? Fokkk... jáá þessi lykt gæti drepið hest!!!
06. desember 2006 klukkan 13:50
Ásgeir Haukur Guðmundsson
Almennt, Sögur
2 athugasemdir
28nóvember

Takkk fyrir allar kveðjunar, og takk fyrir mig.....

Þetta var alveg frábær afmælisdagur og hafði ég það bara mjög gott þennan daginn...

Merkis dagurinn 25 nóvember 2006 innihélt m.a.: æfingu, brunch, ljós, nudd, paintball og svo loks út að borða. Maður getur nú ekki beðið um mikið meira. Ekki get ég sagt að maður finni fyrir miklum breytingum þó að maður sé jú árinu eldri eða 23 ára. Hins vegar er 23 ein uppáhalds talan mín þar sem tveir af bestu íþróttamönnum í heiminum fyrr og síðar hafa borið þessa tölu og gera það ennþá, sem lítill strákur dreymdi manni um að verða eins og þeir. Þetta eru auðvitað snillingarnir og átrúnaðargoðin M.Jordan og David Beckham.

Annars er munnlegt kínversku próf næst á dagskrá eða á morgun miðvikudaginn, á föstudaginn eigum við að skila tveimur ritgerðum og svo á mánudaginn eru tvö próf, fyrst förum við í kínversku prófið svo eftir hádegi er það buisness law og þá er þetta bara búið hérna úti að hugsa sér.

Ég reinka fastlega með því að koma fyrr heim en áætlað var og er að vinna í því að breyta dagsetningum á fluginu heim, þar sem hún elsku amma mín er orðin veik og vil ég ekkert annað en að komst heim til þess að heimsækja hana og vera hjá henni.

Bestu kveðjur heim, hafið það gott og takk kærlega fyrir kveðjunar.

Kv. Ásgeir Haukur.
 

28. nóvember 2006 klukkan 09:03
Ásgeir Haukur Guðmundsson
Almennt
7 athugasemdir
19nóvember

Afsakið blogg leysið... en hér kemur vonandi eitthvað!!


Það er nú ekki mikið í fréttum  það er farið að kólna skuggalega á nóttinni og þar sem við erum í þeim hluta Kína þar sem ekki eru notaðir ofnar getur orðið frekar kalt. En hvað er maður að kvarta það er ekki eins og það sé brjálað rok, snjór og skítakuldi. Við erum hinsvegar farnir að sofa í sokkum og hlýjum fötum. Næstu helgi erum við svo vonandi að fara til Bejing, en það er höfuðborg Kína og á að vera afskaplega falleg og skemmtileg borg.

Það fer að líða að prófunum, en við eigum að skila 2 ritgerðum, í hagfræði og í Chinese Culture. Eitt próf í Buisness Law og svo bæði skriflegt og munnlegt kínversku próf og þá er það komið. Í kínverskamunnlega prófinu eigum við að halda uppi samræðum í 8 min. takk fyrir og verður það án nokkurs vafa mjög fyndið og skrautlegt, er að spá í að reyna að taka það uppá video. Skólinn átti að klárast 8 des. en það hefur eitthvað verið að rugla okkur með dagsetningum og vonast maður bara til þess að verða búinn fyrr.

Þetta ævintýri hér í Kína verður svo búið áður en maður veit af og er ég bara nokkuð ánægður með það, enda orðinn pínu þreyttur á stórborginni, menguninni og öllu sem því fylgir að búa í 16 til 18 milljón- manna borg. Það verður því gott að komast heim til Íslands í Lækjarhjallann.


Annars kasta ég bara kveðju heim.

Ásgeir

19. nóvember 2006 klukkan 05:14
Ásgeir Haukur Guðmundsson
Almennt
5 athugasemdir
10nóvember

Það snjóar ekki hér í Shanghai....

En það er þó aðeins farið að kólna en ekki mikið.... Annars er bara allt það besta að frétta af okkur hér í Kína, það er mikið búið að vera að gera hjá okkur undanfarið ásamt því kláruðum við Markaðsfræðina í fjarnámi og fórum í kínverskupróf um daginn, sem gekk allt saman vel. Framundan er svo risamót í tennis sem er haldið hér í Shanghai ásamt golf móti þar sem allra frægustu kapparnir eru að mæta á svæðið. Gæti verið að við kíkjum á þessa viðburði aldrei að vita.

Síðustu helgi fórum við Óli, Siggi og Jenný kærasta hans í dýragarðinn hér í Shanghai. Það var mjög gaman sjáum auðvitað fullt af dýrum og öll þeirra helstu uppátæki, það kemur kannski ekki á óvart en ljónin og tígrisdýrin stálu athygli okkar en við keyrðum í brimvörðum bíl um svæði þar sem þau gengu laus, við hengdum hænu utaná bílinn sem dýrin börðust svo um að ná og að lokum fór svo að hænan endaði í kjaftinum á tígrisdýri. Við fengum einnig að halda á litlum ljónsunga sem var um 1 mánaðar gamall hann var algjör dúlli. Aparnir komu sterkir inn enda hef ég lengi verið aðdáandi þeirra. Þeir voru mjög fyndnir og hressir... Ásamt því sáum við hunda/hesta/úlfvalda og strúta - hlaup mjög skemmtileg allt saman.

asiolimonkey
Þessi api sem situr þarna á milli mín og Óla er algjör snillingur.


Það ríkir mikil plötusnúðamenning hér í Shanghai og nánast um hverja helgi eru einhverjir frægir og góðir plötusnúðar mættir hingað í borg til að heiðra okkur með nærveru sinni. Um síðustu helgi  var engin breyting þar á. Þá var það enginn annar en Timo-Maas, en hann spilaði á risastórum klúbb sem heitir G - Spot hér í borg, og auðvitað létum við okkur ekki vanta enda er þar á ferð mikill snillingur sem oftar en ekki hefur komið við á klakanum og spilað fyrir dansþyrsta Íslendinga (Óli). Stór hópur af okkur Íslendingunum sótti þessa uppákomu við gríðarlegan fögnuð og mikla skemmtun þar sem hinn ónefndi fór hamförum.

timomaas
Timo Maas í fullu fjöri!!

Við stefnum á klæðskeramarkaðinn um helgina en þar fáum við stór glæsileg sérsaumuð jakkaföt, skyrtur og fl. á alveg gjafaverði.
Svo er stefnan sett á ákveðinn markað þar sem hægt er að versla helling af góðum og flottum jólagjöfum fyrir allt liðið heima. Ekki slæmt það!!

P.S. Var að setja inn myndir frá því að við fórum í TV - Tower-inn en hann er risarisa stór eða 468 m og þriðji stærsti TV and Radio Turninn í heiminum. Fleiri myndir eru væntanlegar málið er bara að ég og fotki erum ekki bestu vinir þessa dagana.

Bestu kveðjur heim.
Þetta er Ásgeir Háá Guðmundsson sem talar frá Shanghai, Kína.


10. nóvember 2006 klukkan 02:15
Ásgeir Haukur Guðmundsson
Almennt, Sögur
6 athugasemdir
21október

Staðreyndir um Kína og Karoke!!!

Nokkrar skemmtilegar upplýsingar um Kína:

Sjö af tíu menguðustu borgum í heiminum eru í Kína samkvæmt WHO. Í um 200 af 340 stærstu borgum Kína er mengunin yfir hættumörkum.

Lágmarkslaun í Shanghai nálgast 7000 krónurnar sem eru hæstu lágmarkslaun í Kína.

Í Kína er ólöglegt að fremja sjálfsmorð í mótmælaskyni.

Um 80% af kaffi á veitingahúsum í Shanghai stenst ekki hreinlætiskröfur.

Í Shanghai búa um 13,4 milljónir.

Í Kína búa 1,3-1,6 milljarður manna eftir því hvort stuðst er við opinberar tölur í Kína eða tölur Sameinuðu þjóðanna.

Einn af hverjum þremur bændum í heiminum er Kínverji.

Alþýðulýðveldið Kína þekur nærri 9,6 milljón ferkílómetra og er því vel yfir 90 sinnum stærra en Ísland.

Kínverjar eru stoltir af 5000 ára sögu sinni sem nær lengra en nokkurrar annarrar þjóðar.

Pólitísk tök Kommúnistaflokksins í Kína eru enn hin sömu, en frá árinu 1978 hefur kínverska hagkerfið opnast fyrir umheiminum. Í landinu er nú mikill efnahagslegur uppgangur – svo mikill að jafnan er talað um efnahagsundur.

kinaflag


Dagsskráin fyrir daginn í dag er ekki flókin, en við erum að fara allur Íslendingahópurinn að hitta David kínverskukennara hjá "The New Campus" sem eru nýjustu byggingar skólans, sem eru í um 20min. fjarlægð frá okkur. Hann ætlar að sýna okkur allt það nýjasta þar, svo er ferðinni heitið á uppáhalds kínverskaveitingastaðinn hans og þaðan liggur leiðin í karokee. Jább við erum að fara í karokee, sem verður að teljast frekar fyndið, Óli er búinn að lofa því að taka lagið ásamt kennaranum og hef ég heyrt þeir feðgar ætli að taka lagið "I Love You Babe, Don´t Cry" ekki er ég alveg með það á hreinu hvað hljómsveitin heitir enda er hún kínversk, en þetta er mjög vinsælt lag hérna úti um þessar mundir.

Þess má geta að kennarinn okkar drekkur alveg max 4 bjóra, og þá er hann alveg á skallanum ég veit ekki alveg hvernig hann ætlar að fara að þessu en þetta verður fróðlegt. Hann sagði þetta m.a. um daginn "I´m little sceard of going out with you because you drink so very much, I only drink 3 beers. I´ll be wasted if I drink 4 beers".

Ég skelli svo inn myndum af þessu rugli og jafnvel videoi af þeim bakkabræðrum (Óla+David) í ham, þegar þeir taka lagið.

chinakaroke



Hafið það gott og lifið heil....

Kveðja Ásgeir

P.S. Ég skellti inn nokkrum nýjum myndum sem ég fékk lánaðar hjá Heiðu... enjoy

olismashesasi
Góðir sambýlingar (The Love Is In The Air).
21. október 2006 klukkan 07:18
Ásgeir Haukur Guðmundsson
Almennt, Sögur
2 athugasemdir
09október

Fríið búið og við komnir aftur "heim" til Shanghai.

Kallinn er kominn aftur til Shanghai, nánartiltekið á Yangchang Road. Fórum til Sanya sem er alveg syðst í Kína og er eyja á svipaðri stærð og Færeyjar nema þarna er sól og steikjandi hiti allt árið.
Þetta var mjög næs, við gistum á Holiday-Inn 5 stjörnu hótel með einkaströnd og læti. En núna er skólinn komin aftur á fullt eftir viku frí og maður er farinn að æfa sig meira í kínverskunni, svo er markaðsfræði áfanginn byrjaður sem ég,Óli og Siggi tökum í fjarnámi...

Annars einkenndist ferðin af þessu:

Morgunmaturinn sem fær alveg heilar 5 stjörnur eins og hótelið.

Óli, Indi og Eva brunnu fyrsta daginn, voru alveg eins og rauðastarautt epli.

Ég, Óli og Guffi misstum okkur á JetSki einnig fyrsta daginn.

Guffi keypti sér Hawai stuttbuxur/skyrtu/hatt svona til þess að líta út eins og innfæddur (var samt eins og bjááni).

Við drukkum fullt af skemmtilegum kokteilum, t.d. Blue Lagoon, Margarita, Crazy Drink, Jack Frost, Pinacolada og marga fleirri.

Við drukkum líka helling af bjór við sundlaugarbarinn, og skráðum þetta allt á herbergið okkar 558. "Yes it´s Mr.Gudmundsson".

Stjáni P og Heiða komu til okkar á Hótleið og við spiluðum sund-blak og sund-körfu mjöög gaman.

Hinsvegar komu þau aldrei með á djammið, því Stjáni var með hausverk og svo var hann líka brunninn.

Við fórum öll saman að kafa einn daginn, það var alveg magnað að fá að synda meðal fiskana og sjá allt lífríkið var alveg sérstök upplifun, fengum þar viðurkenningarskjal fyrir "framúrskarandi hæfileika" frá China Under Water Association.
Fengum líka fullt af myndum á filmu sem teknar voru af okkur undir niðri.

Ég og Guffi vorum alltaf úti í sólinni enda komum við heim alveg elg-tannaðir....

Það var aðeins of oft farið snemma að sofa, en alltaf vaknað eldsnemma.

Eva rústaði okkur strákunum í asna-sund-körfu og vann 4 kokteila fyrir vikið sem gleymdist alltaf að borga.

Við djömmuðum af okkur rassgatið á rússabar sem hét "Sky Bar" en þess má geta að rússa-djöflar sækja mikið til Sanya.

Svo héldum við brjálað diskó/teknó kvöld að hætti Bóans, í taxanum á leiðinni heim það kvöldið (video væntanlegt).

Þegar við tékkuðum okkur út fengum við einungis reiking uppá 1800 RMB sem er um 17.000 ísl. kr. vel sáttir með það......

Annars höfðum við það bara mjög gott... enda ekki hægt að búast við öðru!!

Ég skelli inn myndum bráðlega og sömuleiðis myndum úr partýinu fræga hjá mér og Óla um daginn og hver veit nema að myndir frá Tenerife fari að detta inn líka..... Sorry ég bara nenni ekki að skrifa meira ef þið viljið ítarlegri úttekt á þessari mögnuðu ferð þá tók
Ólafur Dagsins þessa ferð út af sinni alkunnu snilld!! Mæli með því

Þreyttur Ási kveður og góða nótt.......

09. október 2006 klukkan 22:33
Ásgeir Haukur Guðmundsson
Almennt, Sögur
1 athugasemd
21september

Þetta Er Helst Í Fréttum Frá Shanghai, Kína!!

- Skólinn er byrjaður á fullum krafti, krítartafla, kennari sem heitir "Dave" eins og allir hinir kínverjanir því þeir eru með svo skrítin/flókin nöfn, harðirbekkir, léleg loftræsting,  og lestur á kínverskum stöfum einkennir flesta morgun kennslustundir hér í Shanghai  þessa dagana þar sem Guffi fer hamförum við lesturinn en hann er gjörsamlega eins og innfæddur/skáeygður.

- Nokkuð hefur borið á því að menn hafi fengið í magann (drullu) hér í Kína, og var einn lögfræði pungurinn búinn að vera með í maganum í næstum 3vikur þegar hann gafst upp fór í apótekið þar sem enginn talaði ensku en lögfræðingurinn dó ekki ráðlaus heldur tók hann sér blað í hönd leysti frá buxunum og þóttist setjast og gera sitt og benti á magan, konurnar hreinlega grenjuðu úr hlátri og allir sem þarna voru staddir en hann var þó vellaunaður með magapillu sem lagaði magavesenið.
 
- Það sem er hinsvegar verra er að Óli, Ólafur dagsins meðleigjandi minn er líka kominn með í magann með tilheyrandi klósettferðum. Þegar ég kom svo heim í gær, gjörsamlega í spreing var klósettið okkar stíflað og alveg við það að vera það stílfað að það færi allt útum allt... Þetta var auðvitað ekki nógu gott, en "'Æjan" okkar (konan sem þrífur allt hátt og lágt fyrir lítið) reddaði málunum seinna um daginn, hún er skoo algjör snillingur.

- Fimmeningarnir eru búnir að vera duglegir við að kíkja í heimsókn til "besta" klæðskera bæjarins, en hann er að sauma á okkur alveg eitruð föt sem eru vægast sagt mjööög mjööööög (eins og stussy segir) flottt!!!

- Herra Bóas er að gera allt vitlaust á markaðnum í grend með magnkaupum sínum, því eftir búðarferðir hans eru allar hillunar tómar.

- Stjáni P. er að setja nýtt met í að kaupa allskonar dótarí sem getur verið mjög gaman að, en hann er einnig að skipuleggja ferð á glæsileg Strönd+Hótel+Sól+Bjór+Kokteilar+Baðföt,hvernig er annars veðrið heima...  En við erum að spá í að fara í í fríinu okkar frá 1. okt til 8. okt. vegna þjóðhátíðardags kínverja sem er 4.okt. en þá verður skooo sprengt upp í mánuð eftirá og það ekkert smáræði.

- Í dag fórum við í geggjað nudd bæði fót og andlitsnudd sem var alveg frábært, og auðvitað borguðum við ekki rassgat fyrir þetta, maður fær eiginlega bara sektarkennd yfir því hversu ódýrt þetta er en svona er þetta í Kína.

- Annars kíkti menntamálaráðherra okkar Íslendinga á okkur um daginn hún Þorgerður Katrín,en  þar sátum við fyrirlestur hjá Dr. Herbertsson frá Háskóla Íslands ásamt fullt af kínverjum sem höfðu mjög gaman að því að fræðast um Ísland.

Annars var ég að henda inn fullt af myndum í albúmið hér til hliðar hægramegin.... Enjoy!!

Kveðja frá Kína kæru vinir....


asinn_radherra
Ráðherra, ég og dr.Herbertsson.

boasinn
Bóasinnnn......

oli
Ólafur Dagsins

kin
Strákarnir og kínverji....
21. september 2006 klukkan 01:14
Ásgeir Haukur Guðmundsson
Almennt, Sögur, Skólinn
6 athugasemdir
13september

Litla systir orðin 17 ára.....

Ætla að byrja þessa skemmtielgu færslu á því að óska henni Kristínu Helgu litlu systir minni til hamingju með 17 ára afmælið í dag 13 september. Hafðu það gott í dag og njóttu þess elsku systir ég gef þér svo eitthvað fallegt þegar ég kem heim. P.S. Farðu varlega með bílinn minn...

En að örðu málum, ég og óli sambýlismaður minn höfum fengið íbúðina okkar sem er þokkalega stór með tveimur herbergjum, baði, eldhúsi og fínu stofuplássi ásamt góðum svölum beint á móti skólanum, þannig að það tekur okkur 1-3 min. að labba yfir. Þetta er þó ekki allt svona gott. Það var einungis eitt rúm og enginn sófi fyrir framan sjónvarpið og heimabíóðið, en við náðum að redda því og leigusalinn borgar helming á móti okkur, fórum með BigaTv (Leigusalinn okkar) í gær og keyptum fínan sófa + borð sem kemur á föstudaginn og náðum að spææsa í eitt stykki rúm fyrir kallinn það kemur reyndar ekki fyrr en eftir viku en dýnan kom í dag... þannig að ég og óli sofum ekki undir sömu sæng í sama rúmi eins og undanfarnar nætur, Óli er nú víst ekki neitt sérlega kátur með það enda bara lítill strákur..... Kannski að maður bjóði honum bara yfir á nýju dýnuna í nótt. Skólinn byrjar á morgun, eigum að mæta í kynningarferð sem farinn verður um svæðið enda er það alveg risastórt sennilega fjórfalt ef ekki fimmfalt bifrastar svæðið í heild, eins gott að missa ekki af því svo maður viti nú hvert maður eigi að fara.....
 
Að lokum læt ég eina góða eða ekki góða mynd af næturfélögunum í Shanghai fylgja...

Ási/Óli-London

Ásgeir Haukur kveður héðan úr Shanghai, China.
13. september 2006 klukkan 17:52
Ásgeir Haukur Guðmundsson
Almennt
2 athugasemdir
11september

Shanghai, China.

Það er allt gott að frétta af okkur strákunum í Kína, ég og Óli vorum bara í þessum töluðu orðum að fá íbúðina okkar sem er staðsett beint á móti skólanum við Yanshang Road. Hún lítur bara afskaplega vel út þó það vanti ennþá eitt rúm og sófa sem er væntanlegt í hús á morgun en við látum það ekkert á okkur fá og sofum bara saman í nótt, enda vanir því. Undanfarið höfum við deilt rúmum hjá þeim snillingum Sigga og Hauki og átt góðar og skemmtilegar samverustundir með þeim og þökkum við þeim kærlega fyrir það. 
En að öðru, í gær fórum við á svokallaðan Markaðinn hérna í Shanghai en hann er þekktur fyirir brjálaða kínverja/skáeygða en þeir eru mikið fyrir að prútta, grípa í mann, gefa manni góðan afslátt "Special for you my friend" bullshit. Við létum þá bara hafa það óþveigið og Haukur fór hamförum þarna og eignaðist marga óvini á met tíma, gott framtak. Þessi snarbrjáluðu Kínverjar/Skáeygðir eru að selja allt milli helvítis og himna það var nánast hægt að finna allt þarna, t.d. náði Bóasinn sér í tvo dolce and bbabana boli þar um daginn á spott prís... Annars má finna mjög góða lýsingu á þessum markaði á heimasíðunni hans Óla
http://www.123.is/olikalli 

Jæjaa farinn að ferja allt helvítis draslið okkar yfir í íbúðina okkar með tilheyrandi látum.....

Hafið það gottttt

Ási - Skáeygði kveður að sinni

11. september 2006 klukkan 15:47
Ásgeir Haukur Guðmundsson
Almennt
4 athugasemdir

Auglýsing

Leikur dagsins